...no hay que llorar, que la vida es un carnaval...

tóta tindilfaett..eda ekki

03.12.2007 20:36:27 / tota

svarthofdi faeddur

Saelt veri fólkid! Ég er ferlega mikill aumingi thegar kemur ad taekni sem er ástaeda thess ad hér hafa ekki verid settar inn myndir af nýjasta fjolskyldumedlimnum. Og svona thar til ég geri svona barnalandssídu thá getid thid farid inn á síduna hjá upplýsingafulltrúanum mínum          -Steini bró- en hann hefur einmitt skellt inn 2 myndum af kappanum sem fékk nafnid Eythor José í hofudid á ofum sínum. Já hann var ekki nefndur eftir fótboltakoppum Liverpool eins og sumir voru vissir um.....

Annars gengur bara vel, hann blómstrar bara og ég svaka happy;) Vid soknum ad vísu mommu, en hún var hjá okkur fyrstu tvaer vikurnar til ad knúsa okkur. Mig fer ad hlakka til ad koma heim og hitta alla, en thad verdur víst ekkert fyrr en í jan eda feb thegar kappinn er ordin pínu staerri. Sem thýdir ad ég missi af brúdkaupi ársins:( Er ekki kát med thad en vona ad Benni og Vala fyrirgefi mér thad. Ég heimta video af stóru stundinni í jólapakkann!!!

 Verd ad haetta, hann vill matinn sinn og engar refjar......já og takk fyrir allt kvittid;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 22:22:47 / tota

hola caracola

takk fyrir allt kvittid!!!! Gaman ad heyra í ykkur. Hér gengur allt saman vel, er meira ad segja ordin betri í mjodmunum tó ég haltri enn:D Enda hef ég verid ansi dugleg í gongutúrunum, sakna samt samt íslensku sundlauganna!

Nú er allt farid á fullt í undirbúningi hjá mér, mamma og pabbi búin ad senda mér saeng og fot fyrir snádann og svona, tó enn vanti mig ýmislegt. Vid keyptum loks vagn í gaer, ég kalla hann sígaunakerruna vegna litarins hehe er blágraenn einhvern veginn og vantar ekki mikid upp á ad vera sjálflýsandi......ólíkt mér?? Já smá en vid erum ordin svo svakalega skynsom í peningamálunum8| Hann kostadi litlar 26 tús. og er med tessar trjár stillingar vagn/burdarrúm, kerra og bílstóll. Svo fylgdi líka med ferdarúm og bílstóll upp ad 18 kg. Ekki slaemt, nema hann brotni eftir 3 mán. Sjáum til. Ég sem var búin ad hlaeja mikid ad litargledi svarthofdanna og var med miklar yfirlýsingar um klassískan dokkbláan vagn hmm.

Er enn ad vinna og tad gengur nú bara vel en er farin ad hafa áhyggjur af tjónamálum tegar ég fer. Veit ekki alveg hver tekur vid af mér tar sem Alberto var vinsamlegast bedinn um ad yfirgefa stadinn eftir leidindarmál med kassann og tjórféd!!!! Fingralangur kallinn og ekki mjog klár. Tad stelur enginn tipsinu á minni vakt! Aetli tad endi ekki bara med faedingu í beinni á 6 Peniques, svona í eftirrétt. Er ad fá fullt af tipsi út á bumbuna, hvad myndi gerast ef ég faeri nú af stad á milli rétta? Umhugsunarvert. Annars held ég ad ég klári tennan mánud og vonandi get ég svo haett eftir tad.

Er farin í eldhúsid....er dottin í kexid aftur

hilsen pilsen


» 20 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 12:21:57 / tota

bolla eda hvad?

Halló allir saman! Sé ad málid er barnalandssída......spurning hvort ég taki mig ekki saman og reyni ad smída eitt stykki svoleidis. Er núna ad hlusta á Bubba, hann og fleiri íslenskir popparar verda ad hjálpa mér vid módurmálskennsluna og tar sem tau heyra víst og skilja tad sem madur segir í gegnum bumbuna er ég tessa dagana ad hlusta á ísl músík og raula taer fáu vogguvísur sem ég man8| Er ekki frá tví ad tetta sé rétt, hann sparkar í tad minnsta kroftulega tegar ég byrja. Kannski er tar um ad kenna litlum songhaefileikum mínum, ég veit ekki....

Óléttan hefur tekid smá breytingum! Hingad til hef ég getad bordad tad sem hugurinn girnist og samt bara tyngst edlilega. Fékk vaegt taugaáfall í sídustu viku tegar laeknirinn minn kippti mér nidur á jordina med heldur ótaegilegar fréttir, TÚ ERT AD VERDA OF FEIT!!!!! Ha ég, spurdi ég eins og álfur????? Teir eru ekkert ad fegra hlutina adeins fyrir vidkvaema frumbyrjuna. Fjogur kíló á tveimur mánudum er víst ekkert edlilegt. Svo er sagt ad edlilegt sé ad tyngjast um 8-12 kg á medgongunni og ég komin í 12 og á tvo mán. eftir:cry: Mér hefur verid skipad ad ganga svolítid alla daga. Tengdapabbi veit sínu viti, en hann var búinn ad segja mér ad labba lengi.

Annad sem er ad hrjá mig tessa dagana er mikill mjadmaverkur! Nú er ég ekki adeins bolla heldur dragholt bolla:$ Laeknirinn kalladi tetta asiatica.....ha nei ég er íslensk ekki asísk.....hef ekki hugmynd hvad tad er. Hún sagdi ad ég gaeti tekid paracetamol en mér finnst ekkert snidugt ad vera ad dópa krakkann. Ég kvelst tví bara, sérstaklega á nóttunni tegar ég tarf ad snúa mér eda standa upp! Er búin ad fá hitateppi lánad og tad hjálpar adeins, eda tangad til ég er ad kafna úr hita og tek úr sambandi. Úff tad hellist allt yfir mann á sama tíma, ég sem fann varla fyrir medgongunni fram ad 6. mán.

Nú er ég búin ad vaela í dágódan tíma og kominn tími á ad skella sér í gallann og fara í gonguna miklu, en mér finnst ég svaka dugleg tví ég geng í klukkutíma, ad vísu á sniglahrada en tad er sama. Svo bara svona til ad hafa tad á hreinu tá finnst mér ég ekkert svo feit, aetla ad reyna ad smella inn myndum fljótlega. Tá getid tid daemt sjálf og sagt mér ef ég lifi í mikilli sjálfsblekkingu.......já og númerid mitt er 0034-958 42 45 80

heyrumst

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 10:04:08 / tota

nettengd á ný!!!

sael verid tid oll somun;) er komin med netid heima og nú vantar bara ad ég kaupi síma líka til ad fullkomna settid.

ég geri mér fulla grein fyrir tví ad ég hef ekki bloggad sídan í mars svo ef tad verda engar heimsóknir verd ég ekkert hissa.....en svona just in case tá kemur fréttaskot frá granada:

- kannski eins og flestir vita tá er von á strák í nóvember! komudagur er áaetladur 15. spurning hvort hann flýti sér um 3 eda seinki sér um 4, ég er nefnilega 12. og mamma 19. Annars er hann velkominn hvenaer sem er engillinn.

- mágkona mín (sú spaenska) er ad taka mig á tauginni....henni finnst ég nefnilega heldur róleg í tídinni og finnst kominn tími á ad fara ad gera allt saman klárt fyrir guttann. ég vaeri ad ljúga ef ég segdi ad tessar adfinnslur vaeru ekki byrjadar ad fara á sálina! hef alltaf verid frekar chillud á tessum hlutum en nú er tetta ad hellast yfir mig....kannski kominn tími á ad fara ad skoda vagn og svona. (sé ykkur glotta baunir)

- vid fórum í trívíddarsónar um daginn! magnad fyrirbaeri alveg hreint. tar sáum vid ad svarthofdi litli eins og steini bródir kallar hann er ekkert mikill svarthofdi.....í tad minnsta ekki enn. laeknirinn sagdi ad hann vaeri jú bara skollóttur snádinn.

annars er ég bara hin hressasta, kannski ordin smá treytt og svona en lídur mjog vel. tengdó finnst ég ordin eitthvad treytuleg svo hann hefur skipad mér ad sofa meira, fara í gongutúr og maeta seinna í vinnuna. ég kvartadi ekkert, líst vel á tetta plan og aetla ad byrja á mánudaginn.

jaeja fer ad reyna ad senda ykkur myndir, spurning hvort taeknin verdi med mér;)

hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 12:13:45 / tota

alohah

er á lífi....en enn tolvulaus! kannski meira mér ad kenna úr tví sem komid er, er búin ad vera taepa tvo mánudi í fegrunaradgerd blessunin. spurning um ad fara ad ná í hana.

Bidin er senn á enda. Nú vantar ekki mikid upp á ad vid getum farid ad flytja okkur um set en tetta hefur verid ansi strembin faeding eins og gloggir lesendur hafa eflaust ordid varir vid. Okkur vantar enn sófa, rúm, stóla, sófabord og herbergid fyrir stelpuna. Get samt óhikad sagt ykkur ad ég á flottasta eldhús Granada!!!! Ekki ad ég vilji vera hrokafull en ég er bara svona helv..ánaegd med eldunaradstoduna mína. Kallinn kom mér líka svona skemmtilega á óvart og setti flísarnar sjálfur. Gott ad vita af einhverjum handlognum tví ekki eru teir miklir haefileikarnir mínir á tessu svidi og pabbi er ansi langt í burtu!

Tad virdast allir eiga afmaeli í einu. Kolfinna aparass og Vala mamma hennar voru í febrúar, núna eru tad Benni bró, Antonio mágur og José núna í mars. En tetta stoppar ekki tar tví 17. mars (afmaelisdagurinn hans Benna) er líka dýrlingadagurinn hans José og tengdapabba. Er ad hugsa um ad finna mér dýrlingadag tví hér eiga allir tvofalt afmaeli nema ég. Gaeti samt ordid erfitt tar sem enginn santo hét Tóta......en ég mun vinna í tessu óréttlaeti á komandi dogum.

tangad til naest chao


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 11:17:47 / tota

gledilega árid

gódan og blessadan......ég hálf skammast mín fyrir tessa draugasídu en ákvad ad drulla mér framúr snemma í morgun og skella mér í baeinn og á netkaffi. Jólin búin og ég fékk engann hamborgarahrygg, ekki heldur kalkún. Lifdi samt tessa hátíd af, adfangadagurinn og jóladagurinn voru skrítnastir, tad skemmtilega var ad í partýinu á 24. med fodurfjolskyldu José er alltaf spilad bingó....og hvad haldid tid....vid unnun sídasta og staersta pottinn ( var farin ad svitna yfir ollu tapinu...) svo sem ekki mikil upphaed en vid komum í tad minnsta út í plús! Dúan hefdi verid flott í herlegheitunum.

Af íbúdarmálum er tad ad frétta ad vid erum búin ad kaupa rafmagnstaekin! Og í gaer kom smidurinn og maeldi allt saman til ad geta byrjad á eldhúsinu. Tetta sem sagt mjakast allt saman tótt haegt sé. Mjá...hann hefur kannski fundid eitthvad á sér kallgreyid...en ég fékk smá tremma um daginn og var í tann mund ad hringja med hótanir....sat á mér sem betur fer. En tetta er samt ekkert edlilegt hvad allt tekur langan tíma hjá tessum svarthofdum (eins og Steini bró kallar tá). Svo er bara hnussad og hlegid ad útlendingnum ótolinmóda hmmm.

jamm kannski ég verdi duglegri á tessu ári í blogginu. Laet vita hvernig gengur med hollina. besitos xxx


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:03:33 / tota

hjellú

sorry!!!!!!! tolvan mín eitthvad alltaf ad hóta mér med vírusa......svo ég hef ekkert getad farid á netid:whut:

gunna mín hér er heimilisfangid mitt: c/ Picual 1, Urb. Los Olivos. Pulianas. 18197 Granada.

er á fullu í jólagjafaveseni.........skrifa meira seinna

besitos xxx


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 10:19:48 / tota

eftir dúk og disk..

Við erum búin að fá íbúðina!!!!! Og er ég alveg einstaklega lukkuleg með það en jafnframt einstaklega pirruð að geta ekki flutt inn í dag.....Hún er tóm og hvít. José vill mála núna en ég vil eyða peningum í eldhús og húsgögn svo ég geti nú flutt mig um set sem fyrst. Sjáum til hver vinnur.....held ég gefi eftir, mamma ráðlagði mér í það minnsta að gera þetta ekki að miklu þrætuefni. Hún veit sínu viti konan, enda verið gift í 30 ár. Þetta er allt saman sálfræði.

Lýsing: þegar gengið er inn er stofan á vinstri hönd og eldhúsið á hægri. Út frá eldhúsinu er smá verönd þar sem ég get hengt út þvott, haldið grillpartý og sólað mig hehe. Svo er gengið inn annan gang og fyrst er baðherbergi á vinstri hönd og svo hjónaherbergi á hægri með sér baðherbergi. Þar við hliðina eru tvö herbergi, eitt fyrir Adriönu og eitt fyrir gesti og held við verðum að geyma fataskápinn okkar þar vegna plássleysis í okkar herbergi. Svo erum við líka með stæði í bílageymslunni fyrir bílinn og vespuna sem ég ætla að kaupa mér;)

Fyrst af öllu ber okkur víst skylda að kaupa 1 líter af ólífuolíu og 1 stk brauð. Við megum samt ekki éta það heldur á þetta að standa í eldhúsinu og morkna þar......ef þetta er ekki það fyrsta sem við setjum í íbúðina er voðinn vís samkvæmt hjátrúnni.

Já ég á afmæli í dag ég á afmæli í dag.......takk fyrir það eldist með degi hverjum. ég ætla að eyða deginum í nýju íbúðinni minni með tusku í annarri og moppu í hinni. Ég er búin að fá föt frá kallinum, straujárn frá tengdó, samlokugrill og hnífapör frá mely og Antonio og svo fullt af gulli frá mömmu og pabba til að kaupa eitthvað nytsamlegt í búið. Takk fyrir það.

Læt þetta duga í bili chao


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 11:34:54 / tota

í fréttum er þetta helst

Það er helst í fréttum að ég er öll út í útbrotum......mér líður alveg einstaklega vel með að vera svona flekkótt og fín:evil: Er sjálfsagt með ofnæmi fyrir einhverju.....held að sökudólgurinn sé flensubaninn sem ég hef verið látin taka síðustu daga. Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara í læknisferð eða bara að bera á mig þetta krem sem ég fékk í apótekinu og eyðir kláðanum sem annars fylgir svona útbrotum. Hef engar pillur tekið í einn og hálfan sólarhring og er svoldið skárri þó ég minni enn á blettatígur. Hmmm læt vita hvernig fer.

Önnur merkilegheit eru þau að ég er í fitun!!!! Þessu hefði ég aldrei trúað en á þessum fimm mánuðum sem ég hef verið hér hef ég bara grennst. Engar áhyggjur, ég er ekki og verð aldrei skinn og bein, en tengdaforeldrar mínir hafa af þessu miklar áhyggjur og láta mig éta allan fjandan. Sætabrauð fyrir háttinn og í morgunmat uhhhm. Ég hins vegar hef ekki mikinn áhuga á að fitna mikið, líður alveg stórvel í nýju gallabuxunum mínum híhí. Ég segi samt ekki nei við einu stykki af flani á hverjum degi ohhh það er svo gott og svo fæ ég von bráðar pakka frá Íslandi......nammi!

Með þessu fréttaskoti og afmæliskveðjum til pabba sem átti afmæli í gær (gleymdi því bara í smástund) kveð ég í bili.


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 10:34:26 / tota

ekki dauð úr öllum æðum

Sælt veri fólkið! Hef ekki verið sú duglegasta í blogginu undanfarið, reyndar bara lítið verið á netinu. En héðan frá Granada er bara allt það fínasta að frétta, reyndar breytist lítið......búum ENN hjá tengdó og er mín orðin ansi óþolinmóð og skilur ekkert í þessu pappírsveseni hjá spánverjunum:whut: Ekki nóg með að þurfa að bíða endalaust eftir íbúðinni sjálfri þá gætum við líka þurft að bíða slatta eftir húsgögnunum sem við viljum......Ég skil ekkert í þessari óheppni minni eða hvað þetta nú er.

Nú er að byrja vetravertíðin í vinnunni, allt farið að róast og Hicham sem vann á kvöldin er byrjaður í skólanum sem þýðir að ég þarf að vinna meira á kvöldin:evil: Er reyndar ekki alslæmt, er frá mán.-fim. á kvöldin en fös. og lau. á morgnana og frí á sun. svo helgin er fín, og mér til mikillar ánægju fékk ég launahækkun!!! Engin svakaleg upphæð en mig munar um 10.000 kallinn á mánuði hehe. Annars væri ég á fínustu launum ef ég fengi allt þjórféð sem ég hala inn....en það fer í pott sem við svo deilum á milli allra, sem er nú reyndar sanngjarnt.

Eitt sem hefur verið að angra mig.....er hrædd um að ég sé að verða sköllótt!!! Ég hef alltaf tekið tímabil þar sem ég er með mikið hárlos en þetta er ekkert grín núna, það er gjörsamlega allt út í hárum og svoleiðis lufsurnar hrynja úr mér í hvert sinn sem ég þvæ eða greiði hárið.....:frown: Veit ekki hvurn fjandan ég geri, José vill senda mig til læknis en mér finnst það nú full langt gengið. Ég er ekki vön þessu læknaveseni enda var maður nú eiginlega aldrei sendur til læknis hérna í den, pabbi sá um sárabindin híhí. Hér mega börnin varla hósta þá verður allt alveg noj:$

jæja nú er mér farið að líða hálf illa að hanga á netinum þar sem tengdó (sem er með þrífidellu) er á fjórum fótum að skrúbba eitthvert hornið og skúringarstelpan annað, já nú er komin profesional ræstitæknir á heimilið;) Ég kveð í bili xxx

 

 




» 8 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 10:29:45 / tota

komin í hlýjuna

góðan og blessaðan! Vika síðan við komum aftur út....fljótur að líða tíminn. Vikan á Íslandi var æðisleg!!!! svooooo gaman að hitta fjölskylduna og vinina. Fórum túristahring til að sýna José nú eitthvað af landinu og hann er enn að undrast yfir öllu þessu vatni hehe. Svo var auðvitað brúðkaupið mikla, Gunna orðin frú Gunna. Hún var eins og drottning stelpan og allt alveg yndislegt, Hlédís með uppistand.....það segir ýmislegt þegar maður sem skilur fimm orð í íslensku veinar úr hlátri þegar manneskjan heldur ræðu;)

Annars vorum við bara róleg á klakanum með Steina og Unni á Laugateignum og í Hólminum hjá mömmu og pabba. Byrjuðum ferðina reyndar í firðinum hjá Benna, Völu og Kolfinnu bollu;) Vel á minnst, José er búinn að panta barn með blá augu eins og Kolfinna......hæpið að það gerist. Pabbi sótti okkur svo í bæinn á sunnudeginum og eftir mat í firðinum fórum við í Bláa lónið sem sló heldur betur í gegn. Fyrir vestan vorum við í afslöppun í vonda veðrinu, fórum reyndar á Helgafell og honum tókst að þegja alla leiðina upp sem er sigur út af fyrir sig;) Já og gekk bara vel að þýða allar samræður sem fram fóru hehe

En annars er allt við það sama hér, vinna vinna vinna. Reyndar er ein geðveik eitthvað að hrella okkur á veitingastaðnum en það er efni í aðra færslu.....

verð að fara að taka mig til fyrir vinnuna;) chao


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 14:47:20 / tota

ísland fagra ísland

kem heim á fimmtudaginn!!!! er orðin ansi spennt! vildi bara láta vita......orðið frekar langt síðan ég nennti eitthvað að skrifa og ekkert gengur að setja inn myndir sorry. en þið sjáið mig live pronto.

er komin með skype en er bara nýkomin með headfone pabbi;) ég reyni kannski að hringja heim áður en ég kem. bið að heilsa á danska daga....annað árið í röð sem ég missi af þeim:evil: ekki gaman. hilsen


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 10:22:57 / tota

hæ hó

fríið búið í bili...ohh en stutt í það næsta! kem heim 24. ágúst og flýg út aftur 30. stutt stopp en í fæ alla veganna að hitta familíuna og vonandi ykkur flest. Við fórum til Benidorm og vorum á risa hótelinu Balí í viku, hitti auðvitað Íslendinga;) og Gunnþórunn var akkúrat að vinna á Bene á þessum tíma svo ég hitti hafmeyjuna aðeins líka. Ekkert smá næs að vera á hóteli og gera ekkert annað en að liggja við sundlaugarbakkann og éta annað slagið hehe. Var svoldið erfitt að byrja að vinna aftur á mánudaginn og ég fékk heimþrá!!!!! Sakna ykkar!!!! Missti af gæsun Gunnu.....ekki slæmt að vera vakin með söngfuglinn Geir Ólafs uppí rúmi syngjandi New York New York....eða hvað? Bara snilld! Hef hitt einn Íslending hér í Granada.....og hver haldiði að það hafi verið????? Ingibjörg mamma Leifs og Eddu!!!!! Af öllum veitingastöðum í borginni kom hún á minn;) Ekkert smá sniðugt og gaman að hitta gamla Hólmara. Verð að fara í vinnuna en lofa að fara að setja inn myndir......get bara svo lítið farið á netið núna, erum með Adriönu út mánuðinn og það er næstum ómögulegt að fara í tölvuna með hana nálæga.... chao! og Hlédís og þið hin sem viljið heimsækja mig komið bara þegar þið viljið.....;) muchos besitos xxx

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 19:44:01 / tota

hola mis bambinos

hjellú allir saman! héðan frá Granada er það að frétta að mikill hiti er að verða minn bani.......þad er eitt ad sóla sig í góðu veðri og annað ad vinna í svörtum síðbuxum:evil: en lífið gengur bara vel, væri samt alveg til í að fara að komast í mína eigin íbúð hehe ekki það að gestaherbergið er svo sem ágætt en þið vitið hvað ég meina:$

Á morgun fæ ég mína fyrstu gesti, og vonandi ekki þá síðustu, en Gunnþórunn og Fríða ætla að kíkja yfir í menninguna hehe. Fyrsta stopp verður la Alhambra, svo held ég að ég fari með þær í gönguferð um Sacromonte og Albaicín. Hlakka til að hitta þær stöllur og spjalla á íslensku. Ég er búin að taka eitthvað af myndum en það gengur eitthvað illa að setja þær í albúm! eins og ég var orðin klár í þessu dæmi.

Núna ætla ég að fara að gera mig sæta því við José ætlum að kíkja út á lífið og fagna því að ég er útskrifuð úr HÍ. Ykkur er öllum boðið.

Sendi fullt af kossum og knúsi á klakann og Unnur til hamingju með útskriftina!!!!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 11:36:12 / tota

it´s alive!!!

Halló halló! er á lífi og allt gengur vel;) Ég er byrjud ad vinna á veitingastadnum sem pabbi José á......ég camarera hehe hef ekki brotid neitt....enntá! Og nú er bara ad spara og spara svo vid getum farid ad finna okkur íbúd. Ég fór í mína fyrstu spaensku fermingu í gaer og gekk bara nokkud vel...og fer svo í brúdkaup á laugard. og hitti tá alla fjolskylduna á einu bretti:S smá stress í gangi, verd vegin og metin býst ég vid.....hlýt samt ad slá í gegn í nýja kjólnum mínum;)

tetta verdur nokkud stutt faersla í dag tví ég tarf ad fara ad vinna, fae brádum netid heim og lofa tá ad skrifa meira. tangad til tá....kossar og knús!


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7